Leo Tolstoy

Leo Tolstoy var rússneskur rithöfundur og leikskáld, heimspekingur og stjórnmálaspekingur, stjórnleysingi, grænmetisæta og friðarsinni. Hann var meðlimur Tolstoy-ættarinnar sem er gömul og áhrifamikil rússnesk aðalsætt og var forríkur landeigandi. Hann er talinn með mestu rithöfundum Rússa. Með frægustu verkum hans eru Stríð og friður og Anna Karenina. Hann boðaði og reyndi að lifa í anda kristilegrar stjórnleysisstefnu.